Ms. Clinton
22.09.2006 21:37:49 / hildurh

Veikindi og lille bebe

Jæja annar dagurinn sem ég er veik og það er ekki mjög gaman :( Er með kvef og kvef í augunum líka, sem á víst að vera hægt og er búið að leka úr nefinu mínu og tja já augunum líka. Svakalega fagurt að sjá.

Vaknaði í morgun og var þá ekki vinstra augað fast saman. Þurfti að rífa það í sundur en ég er að skána núna og nokkurnvegin hætt að leka úr þeim en þau eru nokkuð rauð að sjá. Vonandi lagast þetta í nótt. Oh please

Annars er lítið í fréttum nema að Hjördís var að eignast litla frænku sem er algjört krúttípútt. Jeiiiiii =)

Jæja farin að hnerra

og svo er ásta að bulla um að ég bloggi aldrei, bull og vitleysa stelpa bull og vitleysa


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 12:38:30 / hildurh

Heyrt í sporthúsinu..

Páll Rósinkranz: Hey stelpur, hvar er vaskur ?

Svar: Tíhí þarna, *benda í einhverja átt*

Sönn saga..


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 20:31:48 / hildurh

blogg blogg

var að setja inn nýja hljómsveit "vikunnar" og hönk(a) "vikunnar"

nenni ekki að blogga..lítið í fréttum


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 12:34:32 / hildurh

Geisp...

Fjórar nætur í röð hef ég verið frekar vansvefta en góð ástæða liggur að baki því. Ein af þeim var að ég fór á busaball á mánudagskvöldinu þar sem ég hálftjúlluð í hausnum og var að drepast í fótunum útaf skónum mínum. Þar komst ég einnig að því að ég get verið algjör ruddi og má segja að það voru ófáar manneskjur sem ég hrinti um kvöldið því þær voru oní mér. Bæði stelpur og strákar, mér var nú reyndar hrint einu sinni til baka heheh

En síðan er ég búin að vera að liggja yfir Rockstar Supernova og má segja að álit mitt á Magna hefur hækkað ótrúlega. Þvílík rödd sem þessi maður hefur, vona bara innilega að hann komist sem lengst og haldi sér á sömu braut þ.e.a.s. tónlistarlega séð. Veit samt ekki hvort ég vilji að hann vinni þar sem mér finnst þetta frekar crappy tónlist sem Supernova gaurarnir eru að semja.. eða ég veit ekki : /

Síðan er ég bara búin að vera í tölvunni á nethözzli.. búin að fá þrenn bónorð. Allt frá Indverjum sem sjá ekki sólina fyrir mér þar sem ég er svo æðisleg. NOT

Þetta var smá djók.. hef nú samt lent í einhverjum Indverjum heheh manstu hjördís ?

Annars lítið í fréttum nema skólinn er byrjaður og ég hef litla sem enga löngun til að vera læra hehe og svo fleira sem ég ætla ekki að ræða um núna.

En vildi bara láta vita að ég sé hér enn...

Blogga svona eftir mánuð
blee

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 23:48:07 / hildurh

Myndir frá London

Komnar inná....

ótrúlega gaman jei jei jei jei

set restina inná þegar ég hætti að vera pirrruð útí þetta fokking slow drasl

love you long time

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.08.2006 20:19:01 / hildurh

Heima er best

Úff eftir "skemmtilegt" ferðalag heim eftir vel heppnaða verslunarferð til London þá er ég fegin að vera komin heim.

Akkúrat fyrir viku þá lögðum við af stað út, daginn eftir það var komið upp um þetta hryðjuverkaplott. Skemmtilegt það.

En það var annars mjög gaman úti í London og má segja að við systurnar fórum hamförum í verslunarleiðangrunum í oxford street hohho og má segja að ég hafi ALDREI keypt eins mikið í utanlandsferð og núna.

Keypti tvenn skópör, stígvél, peysur, boli, gallapils, heilan helling af nærfötum, íþróttaföt, dvd myndir, desert sessions diskinn, skart og hárdót. Sé ég nú ekki eftir neinu þar sem þetta var allt saman sem ég þurfti hehe

En auðvitað var nú ekki bara verslað, fórum á British Museum, Madame Tussaud vaxmyndasafnið, Dýragarðinn, Trafalgar Square, Queen Söngleik, Covent Garden, Double decker tour bus um London og margt fleira sem ég man ekki eftir því hugurinn var helst bundinn við verslaninar. Can you blame me ?

Já síðan þurftum við að vakna very early í morgun/nótt, kl 2 á íslenskum tíma sem var 3 á breskum og drulluðumst okkur út í leigubílinn sem keyrði okkur út á Gatwick flugvöll sem var svona 90 km í burtu. Tók einn og hálfan tíma og svo tók við bið eftir check in sem var einnig einn og hálfur tími, síðan svona 20 mín í vopnaleitinni og svo sprettuðum við í flugvélina þar sem við vorum næstum búin að missa af henni. Verð að gefa mér sjálfri mér credit fyrir að hafa sprett í STÍGVÉLUM og tók framúr allri fjölskyldunni með tölu hehe

Svo tók flugið tæpa þrjá tíma sem var yndisleg stund og vildi ég upplifa hana aftur í bráð ehee og já síðan kom ég heim um hádegisleytið. Þannig nú sit ég heima hjá mér í hálfgerðu kóma, nenni ekki einu sinni að klæða mig þannig ég er í skemmtilegri múnderingu, svona Vicky Pollard style.

En já ég ætla að reyna að slaka aðeins á þar sem ég er að fara vinna í fyrramálið og svo á að stefna því að fara í bæinn annað kvöld og kannski party ?

blee

ps. búin að setja inn nýjan hönk vikunnar og hljómsveit.. er að verða hugmyndalaus þannig endilega tjáið ykkur hvað þið viljið hafa næst.


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 19:15:53 / hildurh

1 stykki blogg fyrir afmælisbarnið

Á þessum merka degi fyrir 17 árum þá fæddist lítið óargardýr að nafni Hjördís Lorange.

Til hamingju með afmælið elskan og vonandi hefur dagurinn verið góður og ekki bara fengið nammi úr nammibarnum í hagkaup í afmælisgjöf.

Þú færð mína þegar ég kem heim frá London

sæta pæ

Vá kann meira segja að pósa þegar hún er að worka out... wrárr

okey augun mín eru að springa úr ofnæmi þannig ég hef þetta ekkert lengra.

Love


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 23:05:31 / hildurh

maneater

Hvar á ég að byrja...

Ótrúlega mikið um að vera, kannski einum of !
9 dagar í London sem mér finnst enn vera súrrealískt, hlakka rosalega til að fara og fá tilbreytingu frá mínu daglega lífi sem er að mestu bara vinna. Síðan daginn áður fara Helga og Arna til Bandaríkjanna sem skiptinemar og held að Jóna sé að fara 6 ágúst, vá hvað ég mun sakna ykkar stelpur :( Efast ekki um að ég grenji eins og smástelpa þannig við þurfum að plana smá hitting áður en þið farið...

Svo var ég í litun/strípun í dag og kom þetta bara mjög vel út, gassalega AU NATUREL ! Tók þrjá tíma hjá okkur systrum og var ég að drepast úr hungri allan tímann..
Síðan skruppum við í bæinn með Heiðu Dís og þar skoðuðum okkur um og ég keypti ( surprise surprise) mér hálsmen í Rokk og Rósum, svona hjarta sem maður getur sett mynd inní, svakalega fallegt. Fórum svo á stylinn og hringt var svo í okkur úr vinnunni, annað sinn í dag og beðið okkur að vinna. Algjört emergency.... AAAAAAAAH

Þannig þetta var svakalega skemmtilegur endir á FRÍ deginum mínum, kom heim hálf 9. Gjörsamlega búin á því, en þarf svo að vinna frá 11-10 á morgun sem verður æði.

En ætlar einhver á innipúkann ? Ég ætla á laugardags og sunnudagskvöldið þannig ef einhver ætlar, let me know ;)

Later


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.07.2006 14:29:13 / hildurh

Pimp


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 20:12:10 / hildurh

ÓJÁ !

Tveir og hálfur tími af unaði

Loksins, loksins er Chippendales-hópurinn á leiðinni! Hópinn þarf ekki að kynna en hann samanstendur af karlstrippurum í fínu formi sem koma til að skemmta íslensku kvenfólki sem aldrei fyrr.

Það verða um 10 karlmenn sem skemmta á sýningunni hér á Íslandi hinn 18. ágúst en þeir eru um þessar mundir á ferð um Bretlandseyjar og Norðurlönd. Boðið verður upp á „tvo og hálfan tíma af unaði, dulbúinn sem dans", segir í fréttatilkynningu frá Ísleifi Þórhallssyni skipuleggjanda. Hátt í 1.000 sæti verða í boði fyrir íslenskar konur á Broadway sem munu berjast um að fylgjast með goðumlíkum körlunum.

Sýningar hópsins hafa verið vinsælar í 26 ár og ferðast vítt og breitt um heiminn. Á þessum árum hafa ellefu karlmenn fest sér kvonfang úr röðum sýningargesta en þess má geta að konur sem hyggja á brúðkaup eru iðulega teknar upp á svið af skemmturunum í sérstaka einkameðferð.

Chippendales-hópurinn kemur fram í hundruðum borga víðs vegar um heiminn á ári hverju og skemmtir milljónum kvenna. Sýningarnar vekja iðulega lukku og ganga þær sögur fjöllum hærra að kvenfólk geti ekki á sér setið og dansi upp á borðum strax eftir fyrstu lögin.

Chippendales eru fyrir löngu orðnir klassískir í Bandaríkjunum og koma oft fram í vinsælum spjallþáttum á borð við Jay Leno og Oprah Winfrey. Forsetafrúin Laura Bush viðurkenndi fyrir skemmstu að hún hefði brugðið sér á skemmtun þeirra í Las Vegas, þannig að háir sem lágir eru farnir að samþykkja skemmtunina.

Sýningin á Broadway hefst kl. 20 föstudaginn 18. ágúst og húsið verður opnað kl. 19. Aldurstakmark er 18 ár.

Hver er geim ?


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 21:08:22 / hildurh

WRÁRRRRRRRRRRR

Komin ný hljómsveit vikunnar og hönk einnig, er ekki frá því að þetta er helvíti gott val hjá mér.

Annars er lítið að frétta nema ég er bara að vinna á fullu og svo á leið í eitthvað sumarhús á morgun.

Held samt að ég eigi einhvern "aðdáanda" í zöru þar sem ein spes stelpa sem vinnur á lagernum hættir ekki að tala við mig. Hef fengið margar skringilegar spurningar t.d.

Finnst þér gott að fara í bað ?

Hvað ferðu oft í bað ?

Hvort finnst þér betra sturta eða bað ?

Hvert ferðu að djamma ?

Áttu kærasta ?

Er þetta rétt hjá mér ?

Æj þú ert svo góð, hvar er Heiðrún ?

Og svo toppaði hún þetta í dag með að segja elskan mín við mig og spurði svo:

Afhverju ertu svona mjó, ég er svo feit.

Svo elti hún mig útum allt og vildi halda á fötunum fyrir mig. Jeminn, frekar óþægilegt en ég reyni að vera góð þótt erfitt sé heheh

Þurfti að laga þetta bloggleysi aðeins

later


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 19:41:44 / hildurh

Helvítis tívólí

Mér er svo illt í hálsinum. Fór í bollana með Heiðu Dís, Hjördísi, Þóru og Kristínu og ég var ekkert að búast við neinu. En nei... helvítis gaurarnir voru bara endalaust að snúa okkur og vildu ekkert hætta ! Mér fannst þetta vera heil eilífð þar sem hausinn á mér rykktist aftur og aftur aftur á bak.

Svo týndi ég fallegu rauðu spönginni minni og nýju gleraugun næstum fokin af ! Í lokin lagðist ég bara á Heiðu og beið þangað þetta varð búið haha. Helvítis ógeðin voru næstum búin að drepa mig !

Uhuhuuhuh ég vorkenni mér svo mikið. En nú veit ég að ég er engin tívolí hóra og fer ég aldrei þangað aftur, þótt mér yrði borgað fyrir það.

Annars var þetta næs dagur, pabbi var að kenna mér golf sem ég bjóst aldrei við að spila aftur eftir skelfilega lífsreynslu í 7. bekk þegar ég fékk golfkylfu í hausinn. Svo fór ég í sund og þar var gert grín af mér :(

This hasn't been my day at all

I need a hug :(


 

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 01:48:26 / hildurh

To play the part of a missy queen, pussy cat, sweety, honey, treasure, darling, sugar comb...

Megakyntröllið David Hasselhoff afmæli í gær. Ég er svo veik fyrir mönnum með loðna bringu og liðað hár að ég gat ekki hamið mig og hlustaði á nokkur lög með honum.

http://www.b2.is/?sida=tengill&id=177553

Bara kynþokkafulli dansinn hans í jump in my car makes me CRAZY. Sorry girls he is mine..

wrárrr.....

Ég er síðan að horfa á Rockstar þar sem Magni er að standa sig gríðarlega vel, miklu betur en ég bjóst við. Er það bara ég eða er hann sexy motherfucker ? Kannski þetta rokkaralúkk er að blinda mig eða ég er orðin desperate..úff ?

Þarf að fara skoða á mér heilann

ble


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 19:46:48 / hildurh

I'm in love

12 þús kall en þess virði...

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2